ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI

Hafðu Samband

Hafðu samband ef þú hefur spurningar um pöntunina þína, sendingar, skil eða skipti. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er á opnunartíma þjónustunnar.

Three Roses ehf.
700916-1380
ÞJÓNUSTUTÍMI
Mánudaga–föstudaga 9:00–16:00, að undanskildum almennum frídögum

FAQ

Algengar spurningar

Já, þegar flutningsaðili okkar fær vörurnar þínar, færðu SMS með sendingarnúmeri. Þú getur notað það til að fylgjast með pöntuninni þinni á dropp.is

Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur Reykjavík Roses sér 2-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Þú færð tilkynningu um leið og pöntunin þín er komin til Dropp. Í tilkynningunni er sendingarnúmer þar sem þú getur fylgst með stöðu sendingarinnar.

Skil og skipti fara í gegnum Dropp. Við skil, veldu Reykjavík Roses verslunina, fylltu inn upplýsingarnar og merktu hvort þú viljir skila eða skipta. Eftir að þú skráir endursendinguna biðjum við þig að senda okkur póst með pöntunarnúmeri og láta vita hvað þú vilt gera. Ef þú ert að skipta, nefndu hvaða vöru þú vilt fá í staðinn svo við getum tekið hana frá. Ef þú hefur spurningar, endilega sendu okkur póst á info@reykjavikroses.com

Þú hefur 14 daga frá móttöku til að hætta við kaupin, svo lengi sem varan er ónotuð, í upprunalegu ástandi og með umbúðum. Kvittun þarf að fylgja með til að fá endurgreiðslu. Kaupandi ber kostnað við að senda vöru til baka.