Legal
Lög og skilmálar
Við tökum persónuvernd alvarlega og vinnum eingöngu með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pöntun og veita góða þjónustu. Með persónuupplýsingum er átt við upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang og greiðslu-upplýsingar.
Hvernig notum við upplýsingarnar þínar:
- Til að afgreiða og senda pantanir
- Til að hafa samband vegna pantana eða þjónustu
- Til að bæta upplifun notenda í netverslun
- Til að uppfylla lagaskyldur (t.d. bókhald)
Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er samkvæmt lögum og til að sinna þjónustu við viðskiptavini.
Greiðslur
Allar greiðslur í netverslun Reykjavik Roses eru unnar í gegnum öruggar og traustar greiðslugáttir sem uppfylla strangar öryggiskröfur.
Við leggjum mikla áherslu á að viðskiptavinir upplifi bæði öryggi og þægindi þegar kemur að greiðslum.
- Við geymum aldrei greiðslukortaupplýsingar.
- Allar kortaupplýsingar eru dulkóðaðar (encrypted) og unnar beint af viðurkenndum greiðslumiðlara.
- Við tökum ekki aukagjöld eða falin gjöld við greiðsluferli.
Greiðslur eru aðeins notaðar til að ljúka pöntun og eru ekki miðlaðar til þriðja aðila, nema þegar það er nauðsynlegt fyrir færslu (t.d. greiðslumiðlun eða sendingaraðilar).
Ef eitthvað er óljóst eða þú þarft aðstoð er þér alltaf velkomið að hafa samband: info@rvkroses.store